Færsluflokkur: Bloggar

Ítreka...HERINN HEIM

Sagði það um daginn og segi það aftur... herinn heim.  Wendys we miss u.


mbl.is Er kalt stríð í vændum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er karlmönnum að kenna

 

Karlmenn vanda sig ekki við rannsóknir á getnaðarvarna pillum fyrir konur, þeir vilja konum allt illt helst drepa þær.  Amk samkvæmt þessum pistli frá karlhataranum Sollu Tomm.  Með ólíkindum sem endranær er að lesa þvæluna sem vellur út úr henni og það er eiginlega skylda manns að benda á þetta.  Jafnt konur og karlmenn reka niður í hana þvæluna í commenta kerfinu hennar en svör hennar eru eftirfarandi...

"Vá - sé að ég hef verið að fara inn á ansi viðkvæmt svið þarna. Karlar og læknar brjálaðir. Magnað!

Málefnanleg að vanda og greinilegt að hún býr í allt öðrum heimi en við flest.  Þetta hatur hennar í garð karlmanna er í sjálfu sér rannsóknarefni.   

Langt síðan ég hef bloggað um frau Sóley en sem endranær getur maður ekki orða bundist.  Ekki vildi ég vera karlmaður í lífi Sollu Tomm...


mbl.is Fékk blóðtappa í lungu vegna Yasmin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herinn heim

Hver veit nema bandaríski herinn snúi aftur "heim" á Miðnesheiðina?  Staðir eins og Wendys myndu opna aftur og hægt væri að kaupa Skittles í 2 punda pokum.  Það er öll aðstaða fyrir hendi og ef nýtt "kalt stríð" skellur á þá segi ég bara við mína fyrrverandi vinnuveitendur.... Welcome home!
mbl.is Pútín hótar mótaðgerðum komi Bandaríkjamenn upp eldflaugavarnakerfi í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væl

Alveg makalaust þetta væl í formanni VG.  Enn og aftur eru VG í stjórnarandstöðu enda vart hæfir til þess að stjórna.  Þessi flokkur virðist samanstanda af bölvuðum vælukjóum og hreint út sagt ótrúverðugum stjórnmálamönnum.  Íslenska þjóðin má þakka sínum sæla fyrir það að þessi öfga og bannhyggjuflokkur komst ekki til valda.  Verður fróðlegt að fylgjast með vælinu í þeim næstu árin.
mbl.is Steingrímur J. Sigfússon: Samfylkingin gafst upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sól í Þorlákshöfn

Þorlákshöfn er líkt og Helguvík fínn staður fyrir Álver.  Þetta yrði sennilega fín lausn eftir kosningarnar í mars. Allir sáttir?

 Álversframkvæmdir í Helguvík fara senn að hefjast, fyrsta skóflustungan á að vera á þessu ári.  Framleiðsla á svo að hefjast 2010.  Hið besta mál.  Nú verður forvitnilegt að sjá hvort ekki verði stofnuð samtökin sól í Þorlákshöfn núna, það er víst í tízku að stofna svoleiðis sólarsamtök.


mbl.is Alcan á Íslandi skoðar möguleika á að færa álverið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úpss...

Þau gera ekki boð á undan sér óhöppin... Hjónin eiga eftir að minnast þessa dags lengi en skyldi bróðir brúðgumans verða velkominn í heimsókn eftir þetta?  Ætli brúðguminn sé eitthvað meira skotinn í brúði sinni eftir þetta?  Nei djöfulli var þetta aumt... samt ekki annað hægt en að brosa út í annað að svona fréttum.


mbl.is Skaut föður brúðarinnar fyrir slysni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spenna

Það er ljóst að stjórnin hélt, naumlega þó.  Framsókn er illa löskuð og vart starfhæf í stjórn eða hvað?  Sjálfstæðisflokkurinn er sigurvegari kosninganna, bætir við sig 3% eftir 16 ár í stjórn.  Það liggur ljóst fyrir að nothæf stjórn verður ekki mynduð án Sjálfstæðismanna.  VG bæta við sig en eru vonsviknir enda mældust þeir með allt að 27,2% í mars.  Voru menn þar á bæ að gæla við 20% en fengu 14% sem er vissulega bæting en....... ég hefði amk ekki viljað  vakna í morgun við þær tölur að VG hefði fengið 27%!  Frjálslyndir standa í stað og Samfylking  vinnur varnarsigur.  Ómar var marklaust plagg frá upphafi, þetta var átakanlegt að horfa á hann veifa Sigmund blaðaúrklippunni sinni í gær.....  Næstu dagar verða spennandi.


mbl.is Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýta sér réttinn

 

Það eiga allir að kjósa sem hafa til þess rétt.  Nýta sér réttinn sama hvort menn ætla að skila auðu eða þá jafnvel að kjósa VG eða ÓmarLoL  Þennan rétt ber að virða með því að mæta á kjörstað.  Býst við spennandi kosningarnótt enda benda kannanir til þess að kosningarnar verði tvísýnar.  Ætla rétt að vona það að á mánudaginn svífi ekki yfir okkur dimmt ský vinstri stjórnar...  Allir á kjörstað.

X-D


mbl.is Nærri helmingur búinn að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúskí karamba

Þetta var nú þokkalega gert hjá Eika.  Mun betra en margt af þessu rusli sem boðið var uppá þarna í kvöld.  Guð sé lof fyrir kosningarnar, þær redda spennunni á laugardag.  Ættum við ekki bara að hætta í Eurovision núna?  Eða senda bara Leonice Indversk-íslensk prinsessuna okkar? Þessa einu sönnu.  Sexy Loverboy myndi rokka feitt....
mbl.is Eiríkur: Samsæri austantjaldsmafíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banna..banna..banna.

 

Það er bara gaman að þessu, VG að banna eitthvað.... kemur reyndar ekki á óvart. . Framsókn er að sækja á og VG eru að falla hratt....ætli stjórnin haldi ekki bara?  Þetta verður spennandi.  Samfylkingin er að rjúka upp, verð að viðurkenna að auglýsingar þeirra margar hverjar eru ansi skemmtilegar..það skilar sér. 


mbl.is Vilja banna ráðherrum að skrifa undir samninga 90 daga fyrir kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Örvar Þór Kristjánsson

Spurt er

Verða Liverpool enskir meistarar næsta tímabil?

Höfundur

Örvar Þór Kristjánsson
Örvar Þór Kristjánsson

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 398

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband