14.2.2007 | 10:54
Lopaklæddar rauðrófur
Rakst á þennan kaldhæðnispistil inná veraldarvefnum um daginn. Góður penni ritar þetta á síðu feminista. Ekkert nema tær snilld og kannski margt til í þessu? Dæmi nú hver fyrir sig, þó auðvitað þessi pistill sé settur inn svona meira til gamans.....
Skelfing sem ég er orðinn þreyttur á tuðinu í þessum kellingum alltaf hreint. Það er ekki stundlegur friður fyrir endalausu jarmi um launamisrétti, kúgun og og almennt óréttlæti heimsins í garð kvenna. Íslenskra kvenna! Þvílíkur endemis þvættingur. Yfir hverju hafa íslenskar konur að kvarta? Það er svoleiðis hlaðið undir rassgatið á þessu hérna. Það eru krúsídúllubúðir og hárgreiðslustofur á hverju götuhorni, þær geta valið úr tískublöðum, sjónvarpssápum, fitubrennslunámskeiðum og fæðubótarefnum. Þær fá bæði að kjósa og keyra bíl. En nei. Íslenskar konur eru kúgaðar. Þeim finnst þær nefnilega ekki fá nógu vel borgað fyrir það sem þær kjósa að kalla sambærileg störf. Sumsé vinnuframlag þegar frá er talin aukavinnan sem þær ekki nenna að vinna - og að því gefnu að þær séu hvorki óléttar - né á túr.Þetta er bara rugl. Ef konur eru svona óánægðar með laun sín og kjör ættu þær bara að asnast til að skipta um vinnu, ekki satt? En nei, þær láta sko ekki bjóða sér hvað sem er. Þau fáu störf sem konur á annað borð hafa nennu til að stunda, altsvo þau störf þar sem þær komast auðveldlega úr til að fara í ræktina - og svo í maníkjúr, hafa þær nefnilega markvisst lagt undir sig með frekju og yfirgangi. Vinnuveitendur neyðast því til að tæla með gylliboðum í þessi sömu 'sambærilegu' störf karlmenn, sem á annað borð þola samvistirnar við andlitsspartslað, dragtklætt kvennagerið. Og nú rær þetta hyski öllum árum að því að komast í stjórnir fyrirtækja - finnst það bersýnilega hið eftirsóknarverðasta af öllu eftirsóknarverðu. Stjórnarseta! Annálaðasta letibykkjudjobb sem fyrirfinnst. Jafnvel hörðustu bissníssnaglar breytast við slíka setu á örskotsstundu í forherta kaffiþambara og kjaftatíkur. Vei viðskiptalífi íslensku ef bannsettar kellingarnar komast þangað inn brjóstfalskar og klaufpilsaðar með lattebolla sína og kjaftablöð.Svo eru þeir sem voga sér að andhæfa þessari óvinveittu yfirtöku kvensniftanna úthrópaðir karlrembufauskar og vændir um steingerða heilastarfsemi. Huh! Sér er nú hver remban. Ekki erum við vesalingarnir með sérstaka karlakirkju, karlréttindafélag Íslands, karlasögusafn eða moðerfokking Rannsóknastofu í karlafræðum! Það hefðu nú adeilis heyrst skrækir í horni ef við hefðum haldið Karlafund á Þingvöllum síðastliðið sumar. Karlafundur!? Hvað með uppvaskið? Ætlaðir þú ekki að þvo bílinn? Fékkstu ekki að hitta strákana í fyrrasumar?!---Annars eru einhverjar lopaklæddar rauðrófur að hvetja kynsystur sínar til að leggja niður störf næstkomandi mánudag. Bravó! segi ég nú bara. Vonandi verður það til frambúðar.
SJS Lopaklæddar rauðrófur : öfgafullir feministar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2007 | 15:44
Öfgafullir feministar
Ætla rétt að vona að ég verði ekki hálshöggvinn eftir þennan pistil en here it goes. Datt fyrir slysni inn á síðuna http://truno.blog.is/blog/truno/ og renndi yfir bloggfærslur þar. Á síðunni kennir margra grasa og hinir ýmsu pennar sem skrifa á síðuna. Jafnrétti er verðugt málefni, höfum það á hreinu áður en lengra er haldið. Það sem vakti athygli mína helst er grein eftir Elínu Jóhannsdóttur. Hér er greinin: Hugsaðu þér: ...ef í öllum snæviþöktum görðum væru snjókerlingar
...ef það væri kona í tunglinu
...ef það væri græn kona á gangbrautarljósinu
...ef það væru ráðfrýr og forsetur
...ef það væru kóngínur
...ef bleikur væri líka strákalitur
...ef farið væri í frið í stað þess að fara í stríð!
...ef ráðfrýr væru ekki frekjudósir heldur ráðsnjallar og ákveðnar
...ef hægt væri að vera föðursjúkur en ekki móðursjúk
...ef míns og þíns væru jöfn
Þetta er sláandi og í raun óendanlega fíflalegt. Hvaða máli skiptir þetta jafnréttið?? Græna konan á umferðarljósunum mun minnka launamun kynjanna og snjókerlingin mun koma Ingibjörgu Sólrúnu til valda. Nei,nei auðvitað ekki... Svona öfgafullir feministar setja óorð á allar hinar duglegu og góðu konur í samfélaginu. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir gerði sig nú að fífli fyrr í vetur þegar hún vildi gera kallinn í umferðarljósunum að konu!! Lagði fram tillögu um það á fundi mannréttindanefndar. Hún var aðalshláturefni í þjóðfélaginu lengi vel á eftir. Ég ber virðingu fyrir duglegu kvenfólki, ég starfa með mun fleiri kvenmönnum en karlmönnum og þær eru í einu orði sagt frábærar. Konan mín er framakona sem hefur unnið sig upp í sínu starfi með mikilli vinnu og krafti. Er ég óendanlega stoltur af henni og af öllum konunum í mínu lífi. Ber virðingu fyrir öllum þeim sem krefjast jafnréttis og virða hvort annað. Duglegar og kraftmiklar konur er hægt að finna út um allt þjóðfélagið en öfgafullir feministar smána þær og okkur öll. Höldum okkur á mottuni. Góða helgi
Bækur | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2007 | 12:04
Skil ekki!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Örvar Þór Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar