Lopaklæddar rauðrófur

Rakst á þennan kaldhæðnispistil inná veraldarvefnum um daginn.  Góður penni ritar þetta á síðu feminista.  Ekkert nema tær snilld og kannski margt til í þessu? Dæmi nú hver fyrir sig, þó auðvitað þessi pistill sé settur inn svona meira til gamans.....

 “Skelfing sem ég er orðinn þreyttur á tuðinu í þessum kellingum alltaf hreint. Það er ekki stundlegur friður fyrir endalausu jarmi um launamisrétti, kúgun og og almennt óréttlæti heimsins í garð kvenna. Íslenskra kvenna! Þvílíkur endemis þvættingur. Yfir hverju hafa íslenskar konur að kvarta? Það er svoleiðis hlaðið undir rassgatið á þessu hérna. Það eru krúsídúllubúðir og hárgreiðslustofur á hverju götuhorni, þær geta valið úr tískublöðum, sjónvarpssápum, fitubrennslunámskeiðum og fæðubótarefnum. Þær fá bæði að kjósa og keyra bíl. En nei. Íslenskar konur eru kúgaðar. Þeim finnst þær nefnilega ekki fá nógu vel borgað fyrir það sem þær kjósa að kalla sambærileg störf. Sumsé vinnuframlag þegar frá er talin aukavinnan sem þær ekki nenna að vinna - og að því gefnu að þær séu hvorki óléttar - né á túr.Þetta er bara rugl. Ef konur eru svona óánægðar með laun sín og kjör ættu þær bara að asnast til að skipta um vinnu, ekki satt? En nei, þær láta sko ekki bjóða sér hvað sem er. Þau fáu störf sem konur á annað borð hafa nennu til að stunda, altsvo þau störf þar sem þær komast auðveldlega úr til að fara í ræktina - og svo í maníkjúr, hafa þær nefnilega markvisst lagt undir sig með frekju og yfirgangi. Vinnuveitendur neyðast því til að tæla með gylliboðum í þessi sömu 'sambærilegu' störf karlmenn, sem á annað borð þola samvistirnar við andlitsspartslað, dragtklætt kvennagerið. Og nú rær þetta hyski öllum árum að því að komast í stjórnir fyrirtækja - finnst það bersýnilega hið eftirsóknarverðasta af öllu eftirsóknarverðu. Stjórnarseta! Annálaðasta letibykkjudjobb sem fyrirfinnst. Jafnvel hörðustu bissníssnaglar breytast við slíka setu á örskotsstundu í forherta kaffiþambara og kjaftatíkur. Vei viðskiptalífi íslensku ef bannsettar kellingarnar komast þangað inn brjóstfalskar og klaufpilsaðar með lattebolla sína og kjaftablöð.Svo eru þeir sem voga sér að andhæfa þessari óvinveittu yfirtöku kvensniftanna úthrópaðir karlrembufauskar og vændir um steingerða heilastarfsemi. Huh! Sér er nú hver remban. Ekki erum við vesalingarnir með sérstaka karlakirkju, karlréttindafélag Íslands, karlasögusafn eða moðerfokking Rannsóknastofu í karlafræðum! Það hefðu nú adeilis heyrst skrækir í horni ef við hefðum haldið Karlafund á Þingvöllum síðastliðið sumar. Karlafundur!? Hvað með uppvaskið? Ætlaðir þú ekki að þvo bílinn? Fékkstu ekki að hitta strákana í fyrrasumar?!---Annars eru einhverjar lopaklæddar rauðrófur að hvetja kynsystur sínar til að leggja niður störf næstkomandi mánudag. Bravó! segi ég nú bara. Vonandi verður það til frambúðar.

SJS” Lopaklæddar rauðrófur : öfgafullir feministar LoL 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Örvar Þór Kristjánsson

Spurt er

Verða Liverpool enskir meistarar næsta tímabil?

Höfundur

Örvar Þór Kristjánsson
Örvar Þór Kristjánsson

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband