7.5.2007 | 19:25
Framsókn taka öflugan endasprett
Framsóknarmenn ná sér upp í 13-15% og halda áfram farsælu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn... nú eða Sjálfstæðismenn og Samfylkingin ná saman... Annars vekur það mikla athygli að Ómar og co eru að hverfa. VG eru að missa dampinn sem er ánægjulegt. Frjálslyndir eiga eftir að dansa í kring um 5%
Þetta verður spennandi en allt annað en vinstri stjórn takk, verum skynsöm.
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur bæta við sig fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.5.2007 | 13:36
Klámhundur!
Ætli þetta sé framtíðin hér á landi ef VG komast til valda Hmmmm.... fréttin gæti verið svona:
Steingrímur J Sigfússon forsætisráðherra er sakaður um ósiðsemi á almannafæri eftir að hann faðmaði eldri konu og kyssti á hönd hennar í opinberri móttöku, sem haldin var í tilefni af degi kennara á Bessastöðum í gær. Sóley Tómasdóttir siðferðiskanslari ríkisins og netlögreglustjóri hefur óskað eftir því að Steingrímur J verði rasskelltur og það fast við hátíðlega athöfn við tjörnina á morgun.
Íransforseti sakaður um ósiðsemi á almannafæri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.4.2007 | 11:17
Henda þessu pakki úr landi
Atvinnumótmælendur! Margir af þeim sem voru hér í fyrra sumar voru svo "high" að það vissi varla hvar það var eða hverju það var að mótmæla! Það á að taka hart á þessu liði, amk þeim sem virða ekki íslensk lög og fremja skemmdarverk. Lögreglan mun auðvitað bregðast við af hörku, enda ekkert óeðlilegt við það. Það er svo sem í lagi að þetta lið tjaldi á einhverju túni og reyki sín "fjallagrös" ef það hagar sér vel. Þeir sem brjóta íslensk lög og fremja skemmdarverk á hiklaust að senda úr landi.
Lögregla biður landsmenn að taka fréttum frá mótmælendum með gagnrýnum huga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
25.4.2007 | 15:12
Stólheppni!
Það má stóla á læknana í Melbourne. Ótrúleg frétt og hreint út sagt með ólíkindum að maðurinn hafi lifað þetta af. Þetta hefur verið svakalegt kast hjá kauða. Sennilega séð þetta í einhverri kúrekamyndinni en sá hefur fengið áfall þegar stólfóturinn óð í gegn um höfuð mannsins.... en allt er gott sem endar vel
Fékk stólfót gegnum höfuðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.4.2007 | 19:43
Góðar fréttir
Hitaveita Suðurnesja og Norðurál undirrita orkusamning vegna álvers í Helguvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.4.2007 | 12:39
Til hvers?
Kjörnir fulltrúar okkar eru kosnir til þess að taka þessar ákvarðanir. Sættum okkur við það. Hér fyrir sunnan amk í Reykjanesbæ eru menn við völd sem þora að axla ábyrgð sína og taka ákvarðanir. Ætlum við að eyða orku og fé í að kjósa um þetta Álver? Vonandi ekki, þrátt fyrir að Sól á Suðurnesjum krefjist þess. Að mínu mati verður Álver í Helguvík mikli lyftistöng fyrir Reykjanesbæ og í raun öll Suðurnes. Þarna skapast fjölmörg störf og auknar tekjur til bæjarins. Það er fátt sem mælir gegn þessu Álveri, staðsetningin í Helguvík er t.d mjög góð og Norðurál mun vinna þessa framkvæmd eftir lögum og reglum. Ég tel að það sé almenn sátt um þessar framkvæmdir enda öllum til heilla. Þessi "ósnortna" náttúrufegurð á Reykjanesinu verður ekki fyrir miklum áföllum.
Hvatt til íbúakosninga um álver á Suðurnesjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
13.4.2007 | 12:03
Nei hvur andskotinn..
Reese Spoon hvað ert að hugsa...
Annars þá er manni slétt sama, vildi bara benda ykkur á nýjasta baráttutrikk anti-öfga-feminista samtakanna..
Þetta er mynband af baráttuaðferðum þeirra.
Góða helgi
Nýtt par í Hollywood? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
10.4.2007 | 21:45
Lopapeysa
Göfugt markmið. En hvernig? Það flýja allir land sem einhvern eiga aurinn og við hin borgum brúsann. Ætli maður fari ekki bara á listamannaframfærslu þega Ögmundur tekur við Fjármálaráðuneytinu. Annars þá vakti mestu athygli mína við þessa frétt myndin af stúlkunni í lopapeysunni ( þessi við hliðina á Ögmundi ) á fundinum. Var svona kalt þarna inni. Lopapeysurnar eru töff á Þjóðhátíð í Eyjum.
VG leggur fram áætlun um að útrýma fátækt á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.4.2007 | 15:31
Klám á mbl?
Öfgameistarinn og siðferðispostuli lands og þjóðar frau Sóley Tomm missti saur áðan þegar hún sá þessa yfirgenglegu "klámmynd" af Söndru Bull á mbl.is Þetta er ákaflega smart mynd af Bullock sem hefur reyndar ekki fundið fjölina sína síðan í Speed en Sóley vill fá mynd af henni í lopapeysu og skíðabuxum, helst með slæðu yfir anditinu. Annars hlakka ég til að fá Söndru hingað, þ.e.a.s ef hún sleppur inn í landið.... ef hún verður í þessum klæðum á hún ekki séns!
Sandra Bullock leikur í kvikmynd á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.4.2007 | 11:41
Að fara eða fara ekki í fermingarveislu
Það er sem betur fer engin fermingarveisla á dagskrá hjá mér í ár, en ég óska öllum fermingarbörnum landsins innilega til hamingju með áfangann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Örvar Þór Kristjánsson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar